Kæru félagar,
Dagana 27-29. janúar nk. mun sensei Jan Spatzek 7. Dan JKS kenna á æfingabúðum hjá Karatedeild Hauka. Jan sensei er flestum kunnugur, en hann hefur heimsótt deildina allt síðan 1994 við góðan orðstír. Æfingar hans eru ávalt áhugaverðar og í senn krefjandi.
Æfingatímar og staðsetningar eru sem hér segir;
Föstudagur í Hraunvallaskóla 18.00 - 19.00 9-4. kyu 19.00 - 20:30 3. kyu – og yfir
Laugardagur í Hraunvallaskóla 10.00 - 11.30 Allir 11.30 - 12.30 HLÉ 12.30 - 13.30 9-4. kyu 13.30 - 15.00 3. kyu – og yfir
Sunnudagur á Ásvöllum 10.30 - 12.00 Allir 12.00 - 13.00 HLÉ 13.00 - 14.00 9-4. kyu 14.00 - 15.00 3. kyu – og yfir
ATH: æfingabúðir sem þessar eru ekki fyrir byrjendur eða börn undir 10 ára nema í samráði við þjálfara.
Gjaldið fyrir æfingarbúðirnar er Allar æfingar 8500 kr., ef greitt er fyrir 23. jan. 7000 kr. Stök æfing 2500 kr.
Greiðslur má millifæra inn á 1101-26-8604, kt. 550293-2429 og muna að merkja við með nafni og kennitölu þátttakanda. Ath. sýna svo staðfestingu á greiðslu við innganginn. |