|

Karatefélag Akraness hefur aðstöðu í íþróttahúsinu við Vesturgötu. Þar er skrifstofan og dojo félagsins (æfingaaðstaðan) er í speglasalnum í kjallara hússins. Salurinn er um 160 fm með nýju parketi og hentar vel til karateiðkunar. Loftið er lágt og því myndast þar stundum rafmögnuð stemning þegar allir eru komnir á fullt og einbeitingin er í botni. |