Vefumsjón
Leita >> 
 Í dag er: sunnudagur, 05 september 2010
 Forsíða
Forsíða
Stundaskrá
Fréttir
Um félagið
Um íþróttina
Tenglar
Hafðu samband
Mótaskrá
Á döfinni
Myndaalbúmið
Nýja myndaalbúmið
Titlahornið


Innskráning
Notendanafn

Lykilorð

Muna eftir mér
Týnt lykilorð ?
Óskráður notandi? Smelltu hér
Íslandsmeistarmót unglinga úrslitin
Íslandsmeistaramót unglinga í KATA fór fram í Íþróttahúsinu Austurbergi um helgina. Um 70 keppendur tóku þátt í einstaklingskeppni og 17 hópkatalið. Það var Karatefélag Reykjavíkur sem stóð uppi sem sigurvegarar í heildarstigakeppni félaga með 23 stig. En í öðru sæti var Breiðablik með 20 stig og Þórshamar í þriðja með 14 stig. KAK varð í fimmta sæti með 8 stig.  Uppskeran hjá okkar fólki voru tvö silfur og þrjú brons. Hafdís Erla og Aðalheiður Rósa fengu sitthvort silfrið í sínum flokkum í einstaklings kata og Valgerður og Dagný Björk brons.  Þá fékk hópkatalið skipað Aðalheiði, Dagný og Bergþóru brons.
Nánar...
Íslandsmeistaramót unglinga í kata 2008
Íslandsmeistaramót unglinga í kata 2008 verður haldið í íþróttahúsinu Austurbergi (er í Breiðholti),
sunnudaginn 24. febrúar kl. 10:00.

Keppt verður í eftirfarandi greinum:

Einstaklingskeppni í kata:
1) Kata stráka 13 ára (f. 1995)
2) Kata stúlkna 13 ára (f. 1995)
3) Kata stráka 14 ára (f. 1994)
4) Kata stúlkna 14 ára (f. 1994)
5) Kata pilta 15-17 ára (f. 1991-93)
6) Kata stúlkna 15-17 ára (f. 1991-93)

Hópkata:
7) Hópkata táninga 13 og 14 ára (f. 1994 og 1995)
8) Hópkata táninga 15 - 17 ára (f. 1991 - 1993)
Íslandsmeistarmót barna í kata 2008
Íslandsmeistaramót barna í kata, var haldið 10. febrúar í Smáranum og hófst kl. 10:00. Keppendur voru um 170 talsins en keppt var í fimm flokkum í kata og þremur flokkum í liðakeppni í hópkata.

Það var Afturelding sem sigraði heildarkeppni félaga með 26 stig en í öðru sæti var Fjölnir með 10 stig. Viðurkenningar dómara fyrir frammistöðu hlutu Eldey Á. A. Sævarsdóttir og Einar Karl Jónsson bæði í Aftureldingu.

ÚRSLIT
Nánar...
Úrslit í bikarmótinu
Bikarmótaröð vetrarins lauk með spennandi móti í Víkurskóla. Nýir bikarmeistarar voru krýndir í mótslok þau Hekla Helgadóttir og Tómas Lee Róbertsson bæði í Þórshamri og óskum við þeim innilega til hamingju með titlana! Niðurstaðan mótaraðarinnar var eftirfarandi:

Nánar...
Karateþing 2008
20. Karateþing verður haldið laugardaginn 9. febrúar í Fundarsal D, 3ju hæð Íþróttamiðstöðinni Laugardal og hefst kl. 10.00. Áætluð þinglok um kl. 16.00.
Málefni sem sambandsaðilar óska að tekin verði fyrir á þinginu skal tilkynna stjórn KAÍ minnst 21 degi fyrir þingið.
Þá skal stjórn KAÍ tilkynna sambandsaðilum dagskrá þingsins ásamt tillögum og lagabreytingum sem borist hafa í síðasta lagi 14 dögum fyrir þingið, sem síðara fundarboð.

Þingstörf samkvæmt lögum Karatesambands Íslands.
<< Byrjun < Fyrri 1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 Næsta > Endir >>

Niðurstöður 71 - 80 af 145
Á döfinni
Gráðun 8. maí
Úr myndaalbúmi
Af Handahófi

Skorradalur 2005
Hver er inni?
Núna eru 22 gestir inni